Sunday, February 01, 2026

Víxla í Le droid Humain 22. jan. 2026

Fyrir hátt í tíu árum hafði pennavinkona og vinkona til margra ára samband við mig og spurði mig hvort ég vildi koma með henni og sækja um inngöngu í alþjóðlega blandaða frímúrarareglu. Þá var ég ekki tilbúin og nýlega farin að stunda fundi í Lífsspekifélaginu. Þessi sama vinkona seldi fyrir mig Drápuhlíðina og spurði mig aftur. Ég tók mér smá umhugsunartíma en ákvað svo að sækja um. Með umsókninni þurfti ég að skila inn sakavottorði, passamynd og svara nokkrum spurningum. Í októberlok átti ég að hitta tvær konum á staðnum sem fundirnir fara fram en þann sama dag snjóaði allt í kaf og bíllinn var ekki kominn á vetrardekkin. Ég hafði samband við aðra konuna og hún féllst á að koma til mín eftir að hafa haft samband við hina konuna. Þær komu saman. Ég bauð upp á kaffi og þær lögðu fyrir mig nokkrar spurningar. Kvöddu klukkutíma síðar. Korteri eftir að þær kvöddu sá ég að þær voru að baksa við að ná bílnum úr stæði hér fyrir framan. Ég fór út og náði í skóflu í minn bíl og hjálpaði svo til við að ýta bílnum. Einhverjum dögum síðar sótti vinkona mín mig og við hittum aðra konuna á fundastaðnum. Í lok nóvember fékk ég að vita að ég væri komin inn og að það yrði víxla þriðja fimmtudag í janúar.

Ég fékk að vita sumt varðandi víxluna og eins um það hvernig maður kemur klæddur á fundi. Helgina fyrir víxlu hafði vinkonan samband og sagði að ég yrði að mæta á slaginu hálfsjö en bara í anddyrið, spyrja eftir henni. Ég var komin á stæði við fundastaðinn tíu mínútum fyrir boðaðan tíma og beið í bílnum þar til klukkan var alveg að verða. Ég var nýkomin inn þegar vinkona mín kom og sótti mig. Hún bað mig um að vera ekki að horfa of mikið í kringum mig. Hún fór með mig inn í sérstakt herbergi og skildi mig eftir þar. Skömmu síðar var bankað og inn mætti maður, sá hafði hringt tvisvar í mig. Hann vildi aðeins spjalla en eftir að hann var farinn var fljótlega bankað aftur og sá sem kom inn er svokallaður boðberi. Sá átti að undirbúa mig og leiða mig í gegnum allt ferlið. Fyrst bað hann mig um að skrifa hugleiðingar á blað um hvað ég ætlaði mér að gera ef ég væri samþykkt inn í regluna. Þegar hann kom næst sagði hann mér að þegar ég yrði þess vör að allt hljóðnaði frammi mætti ég nota tækifærið og skreppa á salernið en svo að kasta af mér öllum klæðum nema nærfötum og fara í hvítan kyrtil sem þarna hékk á herðatré. Næst þegar hann kom tók hann punktana og sagði að það væri að styttast í að hann myndi sækja mig.

Er ekki viss hvað tímanum leið en þegar hann sótti mig stillti hann mér upp fyrir framan dyr og sagðist þurfa að setja reipi um hálsinn á mér og bindi fyrir augun. Ég samþykkti og ákvað að hafa augun lokuð, reyna ekki að kíkja bara treysta. Hafði í og með áhyggjur af því að mig myndi svima en þagði um það. Boðberi sagðist myndu leiða mig allan tímann og ég ákvað bara að treysta, upplifa og njóta. Hann bankaði eitt högg á dyrnar og gaf upp ákveðið svar við spurningu sem borin var upp. Okkur var hleypt inn og hann leiddi mig og stillti mér svo upp. Ég þurfti að svara spurningum, þeim sem kröfðust já eða nei svars svaraði ég alltaf með jái. Öðrum spurningum átti ég mis erfitt með að svara en fékk samt þau viðbrögð frá spyrjanda að sá eða sú væri ánægður með svarið. Þrisvar sinnum var ég leidd inn og út í gegnum upphafsdyrnar, allan tímann með bundið fyrir augum. Þrisvar sinnum var ég leidd eða mér stýrt í gegnum mismunandi "manndómsvíxlur". Stóðst öll próf og loksins var bindið tekið frá augunum. Það var mjög yfirþyrmandi og ég hálf klökknaði en var ákveðin í að standa bein í baki, bera höfuðið hátt en þó vera auðmjúk. Tvisvar eða þrisvar í gegnum ferlið þurfti ég að krjúpa á kné og það var einna erfiðast því ég er mjög léleg og veik fyrir í hægra hnénu en ég fékk ágætis stuðning og þetta gekk vonum framar, þó ekki alveg áfallalaust. Var einu sinni næstum dottin. Á næsta fundi sem verður n.k. fimmtudag á ég að segja stuttlega frá upplifun minni af víxlunni. Má ekki vera margorð og ég verð að hugsa mig vel um og æfa mig í huganum hvað af því sem ég upplifði ég skuli tjá mig um og hvernig.

Tuesday, November 11, 2025

Svört dragt

Ég er búin að sækja um inngöngu í alþjóðlega, blandaða frímúrara reglu og mun eiga von á því að verða boðin og vígð inn einhvern tímann fljótlega á nýja árinu. Á fundum eru allir í svörtum (einlita) sígíldum jakkafötum eða drögtum og hvítum skirtum og blússum. Fann buxnadragt og blússu í Black Pepper í gær og fjárfesti í fyrir tæpar 35 þúsund krónur. Á svarta skó og svarta sokka. 

Wednesday, September 17, 2025

Eitthvað sem ég vil muna en ekki opinbera, amk ekki strax

Fyrir tæpri viku, í kringum 12.-14. september kom blóð í pappírinn þegar ég þurrkaði mér eftir að hafa pissað. Hef ekki fundið fyrir neinu sleni eða slappleika. Blóðið var ekki mikið en kom í pappírinn oftar en einu sinni. Ég setti dömubindi í brækurnar og amk í einu tilviki kom dökkur smá blettur þar. Hef ekki orðið vör við þetta í fjóra daga en ég ákvað í framhaldinu að panta mér tíma í leghálsskoðun á heilsugæslunni. Fékk ekki tíma fyrr en 2. okt. n.k. en í millitíðinni neita ég því að hafa of miklar áhyggjur þótt það slæðist að mér sú hugsun að í versta falli muni ég ekki geta gefið blóð aftur. Og mig sem vantar aðeins 6 heimsóknir upp í 75.

Saturday, September 28, 2019

Reið og sár

Ég veit ekkert í minn haus núna. Held helst að ég hafi upplifað martröð lífs míns í gærkvöldi af hálfu manns sem ég hef þekkt í amk tuttugu ár og hefði fyrirfram aldrei trúað því að hann gæti komið svona fram gangvart mér. Atvikið hefur vakið upp sárar minningar um nokkuð sem henti mig þegar ég var tólf ára gömul. Get varla skrifað um þetta. Veit að þetta hefði geta verið mun verra en þetta var klárlega misnotkun á trausti, kynferðisleg áreitni. Oj, oj, og aftur oj. Ætti helst að skrifa niður nákvæmlega hvað gerðist en ég vil helst gleyma þessu sem allra fyrst og reyna að líta á þetta sem vondan draum. Verð samt einhvernveginn að gera manninum skiljanlegt að ef hann hagi sér svona aftur muni ég fara með málið lengra. Vonandi skammast hann sín og þetta kemur ekki aftur upp en það er hætt við að ég verði stífari og fálátari, forðist hann hreinlega.

Sunday, December 17, 2017

Jóladagur 25. Desember 2017 í óháða söfnuðinum.


Gleðilega hátíð kæra samferðafólk!

Það er margt búið að ganga á í kollinum á mér frá því Pétur bað mig um að taka þetta verkefni að mér á jóladag fyrir ári. Ég ákvað þó strax að taka þessari áskorun alveg óviss um hvernig ég ætti og ætlaði að tækla þetta verkefni. Ég veit vel að ég get alveg skrifað, hef frá því ég man eftir mér dregist að línustrikuðum blöðum og haldið dagbók með hléum síðan ég var krakki. Frá því 2003 færðust þau skrif yfir í bloggheima og þar á ég enn mína spretti.

Ég er annars ein af þeim sem er alin upp í sveit. Tel mig Rangæing í húð og hár þótt mömmu greinar skiptist í vestur, og norður. Hún fæddist á Akureyri 1944. Til tólf ára aldurs átti ég lögheimili á Heiði á Rangárvöllum, um 16 km frá Hellu. Föðurafi minn var fæddur þar árið 1894 og pabbi og öll hans 4 systkyni á árunum 1920-1934, pabbi yngstur.

Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu.  Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín. Helluvaði er aðeins nokkra mínútna gönguferð frá húsinu sem foreldrar mínir byggðu á Hellu og búa enn í.

Ég er ekki fyrsta barn foreldra minna þótt í sé sú eldri af tveimur systum. Frumburður foreldra minna, "Litla-Anna", fæddist daginn eftir fimm ára brúðkaupsafmæli þeirra í september 1966 en hún dó eftir stutt veikindi aðeins fimm mánaða gömul. Önnu nafnið mitt er því bæði eftir henni og í höfuðið á móðurömmu minni. Yngri systir mín fæddist rúmum 19 mánuðum á eftir mér. Ég kallaði hana víst Óóið lengi vel er mér sagt en ég man ekkert eftir því. Þegar ég fer að muna eftir mér sváfum við í koju, hún í þeirri efri og ég í þeirri neðri af því að ég átti það til að ganga í svefni. Okkur voru snemma kenndar bænir, vers og heilræðavísur og það var föst venja að fara þær og signa sig fyrir svefninn. Þegar við fengum sér herbergi í kjallaranum varð mamma oftast vör við það þegar ég labbaði af stað því þótt ég væri steinsofnadi þá fór ég í klossana mína. Mamma náði þá oftast að snúa mér við áður en ég var komin alla leið upp og fylgja mér í rúmið aftur. Ég man þó eftir einu skipti þar sem ég vaknaði upp á gólfinu fyrir framan tröppuna inn í hjónaherbergi. Mig hafði verið að dreyma að ég væri á sundæfingu.

Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina, þessa með Grýlu utan á, undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið var hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja textamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í textamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.

En ég átti víst að segja frá jólaminningum mínum. ...og verð ég þá að viðurkenna og kannast við að undirbúningur undir jólin voru bara vesen í mínum huga, svo langt sem ég man? Mamma var og er mikið jólabarn og hún komst í mikið stuð þegar líða fór að aðventu.  Hún saumaði eitt sinn jólaklukkustreng, sem var númeraður frá 1 - 24 og rauður hringur við hvert númer. Áður en 1. desember rann upp var hún búin að pakka alls konar nammi-molum inn í álpappír, binda utan um og festa tvo pakka í hvern hring. Svona töldum við systur niður dagana til jóla. Mamma saumaði líka á okkur jólafötin í mörg ár. Allt var þrifið hátt og lágt og mamma var að langt fram á nótt vikurnar fyrir jól. Pabbi hjálpaði henni eftir að hann kom heim úr vinnu á kvöldin. Settar voru upp jólagardýnur í eldhúsinu og jóladúkar á eldhús- og stofuborð. Mamma bjó til aðventukrans og notaði svo hluta af greninu til að gera smáskreytingar og festa fyrir ofan innrammaðar myndir á veggjum í stofunni og víðar. Ákveðnar jólaskreytingar áttu sína föstu staði. Ég man sérstaklega eftir pínu litlu, skreyttu gervijólatré sem mamma hafði valið sem möndlugjöf sem unglingur og fékk svo sjálf möndluna. Þetta tré var alltaf sett upp á stofuklukkuna.

Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba sem voru átta og tíu árum eldri en ég, boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.

Það var annars aldrei farið í kirkju á aðfangadag, jóla- eða gamlársdag, hvorki á meðan við bjuggum í sveitinni né eftir að við fluttum alfarið í þorpið 1981. En ég man að við fórum einu sinni á aðventustund, stuttu fyrir jól, í Þykkvabæjarkirkju og þótti mér sú stund afar hátíðleg.

Á Þorláksmessukvöld var gervitréð sett saman og pabbi athugaði hvort seríurnar væru í lagi áður en þær voru settar á og tréð skreytt. Mér fannst mest spennandi að sjá hversu mikið tréð hafði "minnkað" frá því árinu áður. Það var alltaf einhver munur en ég óx frekar hægt, 1-2 cm ár ári og eitt ári, tók systir mín mikinn vaxtakipp lengdist um heila tíu sentimetra og óx mér vel yfir höfuð. Ég, sem hafði alltaf verið aðeins stærri, var alveg nokkur ár að ná henni aftur.


Í hádeginu, á aðfangadag, var mamma með heitan grjónagraut með möndlu í og sá sem fékk möndluna fékk fyrsta pakkann. Klukkan fimm voru pakkarnir settir undir tréð en ljósin voru þó ekki kveikt fyrr en klukkan sex. Þá var líka sest að borðum og borðaður lambahryggur eða læri með öllu tilheyrandi. Ég var ekki mikið fyrir brúnuðu kartöflurnar og jólaölsblandan, hvítöl, malt, kók og appelsín fór alls ekki vel í magann minn. Þegar borðhaldinu lauk fengum við systur að opna fyrstu pakkana, sem voru yfirleitt merktir frá jólasveininum. Lengi vel voru líka geymdir nokkrir pakkar sem sem við systur áttum og opnuðu einn á dag alveg fram á gamlársdag. Ég sagði frá því hér að ofan að ég var og er mikill lestrarhestur. Ein bestu jólin voru líklega þegar ég var um ellefu ára. Ég fékk nýja skólatösku, einhverjar flíkur, kerti og spil frá heimilisfólkinu á Kaldbak en það var hefð í mörg ár og svo heilar ellefu bækur.

Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.

Minningarnar eru margar og ég gæti rifjað endalaust upp og sagt frá. Kannski er líka skrýtið að ég segi lítið frá sveitalífinu sjálfu því ég var á tímabili alveg ákveðin í að eiga alltaf heima í sveit. Reyndar var eitt og annað sem mig langaði að tæpa á en þegar ég komst af stað í skrifunum virtist einhvern veginn ekki rétt að hafa það með.

Mig langar til að enda þetta á því að fara með smá bæn í ferskeytluformi sem ég samdi í endaðan mars fyrir bráðum þremur árum:


Legg ég saman lófa mína
leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
(ASH 28.03.2015)

Takk fyrir mig!

Tuesday, December 12, 2017

Unnið að jólahugvekju

...og verð ég þá að viðurkenna og kannast við að undirbúningur undir jólin og jafnvel jólin sjálf voru bara vesen í mínum huga, svo langt sem ég man? Ekki veit ég hvort þetta muni rata í endanlega útgáfu af jóladagspistli mínum. Það fer alveg eftir því hvernig punktarnir raðast niður og þótt þetta muni enda í lokaútgáfu textans þá gæti ég "klippt" þetta út og sleppt því að opinbera þetta. Tilgangurinn með því að skrifa þetta upp núna er aðeins sá að koma mér af stað með skrifin. Ég skal ná að klára þetta án þess að setja mig í of mikla pressu. Ég sleppti sundinu í morgun og reif mig upp um hálfátta því ég var svo viss um að nú væri andinn að koma yfir mig.

Ég var mjög hænd að föðurafa mínum meðan hans naut við. Ég man að ég skynjaði svo sterkt að hann talaði við mig líkt og ég væri orðin fullorðin. Elti hann ef hann var að sýsla eitthvað útivið og sat líka löngum stundum á stól í herberginu hans þegar hann var orðinn veikur. Þá stóð ég upp öðru hvoru og strauk honum um ennið eins og gert var við mig þegar ég var lasin. Mér þótti það ósanngjarnt að vera tekin frá afa mínum þegar hann fór að kasta upp því ég, þá aðeins þriggja ára vildi hjálpa honum. 

Það var aldrei farið í kirkju á aðfangadag, hvorki á meðan við bjuggum í sveitinni né eftir að við fluttum alfarið í þorpið. Ég man að við fórum einu sinni á aðventustund í Þykkvabæjarkirkju þar sem var helgileikur um fæðingu jésúbarnsins og þótti mér það mjög hátíðlegt. Í hádeginu var mamma með heitan grjónagraut, með möndlu í og sá sem fékk möndluna fékk fyrsta pakkann. Klukkan fimm voru pakkarnir settir undir tréð sem var oftast sett upp og skreytt á Þorláksmessu en ljósin voru þó ekki kveikt fyrr en klukkan sex. Þá var líka sest að borðum og borðaður lambahryggur eða læri með öllu tilheyrandi. Ég var ekki mikið fyrir brúnuðu kartöflurnar og jólaölsblandan, malt, kók og appelsín fór alls ekki vel í magann minn en allt annað var mjög gott enda var ég frekar mikið fyrir að borða alls kyns mat. Þegar borðhaldinu lauk fengum við systur að opna fyrstu pakkana.

En ég átti víst að segja frá jólaminningum mínum. Mamma var og er mikið jólabarn og hún komst í mikið stuð þegar líða fór að aðventu. Allt var þrifið hátt og lágt og mamma var að langt fram á nótt. Pabbi hjálpaði henni eftir að hann kom heim úr vinnu á kvöldin. Eftir að ég stálpaðist varð það mitt verk að þrífa alla eldhússkápa og skúffur að utan og innan. Það var þó ekki gert fyrr en búið var að baka. Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og mamma var potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Foreldrar mínir hjálpuðust líka að við að sníða upp, baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann.

Thursday, November 27, 2014

Hjá spákonu

Ég fór og hitti spákonu í gær og hafði bæði gott og gagn af þeirri heimsókn.  Hún gat sagt mér að ef ég sæktist eftir stöðu fyrirliða kortadeildar þá fengi ég hana.  Það væri einhver af stjórnendunum sem er mjög áfram um að ég taki þessa stöðu að mér.  Það þýðir auðvitað aukna ábyrgð sem ég á alls ekki að vera hrædd við og hærri laun.  Ég þarf að einhenda mér í að leggja fortíðina og það sem búið er alveg að baki og hún sér bara bjart framundan hjá mér.  Henni fannst sem ég ætti eftir að fara í mikið ferðalag á næstunni og hún var næstum viss um að ég ætti eftir að flytja.  Hún sagði mér að það stæðu margir og góðir kraftar að baki mér og að ég væri afar bænheit og hefði lækningamátt.  Hún hvatti mig til að nota "leyndarmáls" leiðina alveg óhikað og meðvitað.  Ég mun ekki verða ein lífið á enda en ég yrði að velja mér förunaut sem væri á "mínu leveli".  Þetta og margt fleira kom fram sem ég þarf að melta svolítið og meðtaka.