Dagbók um líkamlega líðan (og kannski fleira persónulegt)!
Sunday, December 28, 2003
Virðist vera orðin eins og klukka. Blæðingar byrja alltaf á sama tíma. Byrjuðu í smáum stíl seinni partinn í gær. Og nú er bara að vona að þær verði búnar fyrir næstu helgi.
Tuesday, December 23, 2003
Áttundi dagur af tíu á Primolut. Rennur á mig bjúgur en festi samt hringinn orðið sjaldan á fingrinum.
Wednesday, December 17, 2003
Jæja, dagur tvö af tíu. Hafði ekki tíma til að fá mér morgunmat í morgun, óskiljanlegt alveg því ég fór á fætur fyrir sjö. En nú er maginn að kalla á eitthvað. Fæ mér bara vatn þar til ég kemst í kaffi.....
Monday, December 15, 2003
Á morgun tek ég inn fyrstu töfluna af Primolut í þessum mánuði. Ég hlakka ekki til næstu tíu daga.....
Friday, December 12, 2003
Nú styttist í inntöku primolut aftur. Ég hlakka ekki til. Bjúgurinn verður meiri og erfiðara að eiga við þessa sterku löngun í eitthvað sætt sem heltekur mann stundum....
Friday, December 05, 2003
Hvað er að gerast núna, líklega á ég ekki að skrifa um knúsið....???
Thursday, December 04, 2003
Blæðingar í rénun, hélt jafnvel að þær væru alveg búnar en svo var ekki. Klárast vonandi á morgun.
Wednesday, December 03, 2003
Streymið virðist heldur meira en síðast, ég bíð bara og vona að allt verði búið fyrir helgina!