Thursday, November 27, 2014

Hjá spákonu

Ég fór og hitti spákonu í gær og hafði bæði gott og gagn af þeirri heimsókn.  Hún gat sagt mér að ef ég sæktist eftir stöðu fyrirliða kortadeildar þá fengi ég hana.  Það væri einhver af stjórnendunum sem er mjög áfram um að ég taki þessa stöðu að mér.  Það þýðir auðvitað aukna ábyrgð sem ég á alls ekki að vera hrædd við og hærri laun.  Ég þarf að einhenda mér í að leggja fortíðina og það sem búið er alveg að baki og hún sér bara bjart framundan hjá mér.  Henni fannst sem ég ætti eftir að fara í mikið ferðalag á næstunni og hún var næstum viss um að ég ætti eftir að flytja.  Hún sagði mér að það stæðu margir og góðir kraftar að baki mér og að ég væri afar bænheit og hefði lækningamátt.  Hún hvatti mig til að nota "leyndarmáls" leiðina alveg óhikað og meðvitað.  Ég mun ekki verða ein lífið á enda en ég yrði að velja mér förunaut sem væri á "mínu leveli".  Þetta og margt fleira kom fram sem ég þarf að melta svolítið og meðtaka.

Saturday, November 22, 2014

Afhverju í ósköpunum?

Ég verð að koma frá smá hugleiðingum um atburð sem átti sér stað í vinnunni á miðvikudaginn var. Sá atburður átti sér nokkuð langan aðdraganda sem ég veit minnst um en þó eitthvað.  Stóra málið er að "fyrirliði" deildarinnar átti í samstarfsörðugleikum við sinn næsta yfirmann og litla sem ég veit um málið fær mig frekar til að standa með fyrirliðanum sem var búin að vinna hjá fyrirtækinu í næstum því fjörutíu ár.  Hún kom kortadeildinni á fót á sínum tíma.  Já, ég segi var því á miðvikudaginn ákvað framkvæmdastjórinn að bjóða fyririliðanum starfslokasamning.  Eftir sitjum við hin á deildinni með sárt ennið og fullt af spurningum sem sennilega verður seint svarað.  :-(