Fyrir hátt í tíu árum hafði pennavinkona og vinkona til margra ára samband við mig og spurði mig hvort ég vildi koma með henni og sækja um inngöngu í alþjóðlega blandaða frímúrarareglu. Þá var ég ekki tilbúin og nýlega farin að stunda fundi í Lífsspekifélaginu. Þessi sama vinkona seldi fyrir mig Drápuhlíðina og spurði mig aftur. Ég tók mér smá umhugsunartíma en ákvað svo að sækja um. Með umsókninni þurfti ég að skila inn sakavottorði, passamynd og svara nokkrum spurningum. Í októberlok átti ég að hitta tvær konum á staðnum sem fundirnir fara fram en þann sama dag snjóaði allt í kaf og bíllinn var ekki kominn á vetrardekkin. Ég hafði samband við aðra konuna og hún féllst á að koma til mín eftir að hafa haft samband við hina konuna. Þær komu saman. Ég bauð upp á kaffi og þær lögðu fyrir mig nokkrar spurningar. Kvöddu klukkutíma síðar. Korteri eftir að þær kvöddu sá ég að þær voru að baksa við að ná bílnum úr stæði hér fyrir framan. Ég fór út og náði í skóflu í minn bíl og hjálpaði svo til við að ýta bílnum. Einhverjum dögum síðar sótti vinkona mín mig og við hittum aðra konuna á fundastaðnum. Í lok nóvember fékk ég að vita að ég væri komin inn og að það yrði víxla þriðja fimmtudag í janúar.
Ég fékk að vita sumt varðandi víxluna og eins um það hvernig maður kemur klæddur á fundi. Helgina fyrir víxlu hafði vinkonan samband og sagði að ég yrði að mæta á slaginu hálfsjö en bara í anddyrið, spyrja eftir henni. Ég var komin á stæði við fundastaðinn tíu mínútum fyrir boðaðan tíma og beið í bílnum þar til klukkan var alveg að verða. Ég var nýkomin inn þegar vinkona mín kom og sótti mig. Hún bað mig um að vera ekki að horfa of mikið í kringum mig. Hún fór með mig inn í sérstakt herbergi og skildi mig eftir þar. Skömmu síðar var bankað og inn mætti maður, sá hafði hringt tvisvar í mig. Hann vildi aðeins spjalla en eftir að hann var farinn var fljótlega bankað aftur og sá sem kom inn er svokallaður boðberi. Sá átti að undirbúa mig og leiða mig í gegnum allt ferlið. Fyrst bað hann mig um að skrifa hugleiðingar á blað um hvað ég ætlaði mér að gera ef ég væri samþykkt inn í regluna. Þegar hann kom næst sagði hann mér að þegar ég yrði þess vör að allt hljóðnaði frammi mætti ég nota tækifærið og skreppa á salernið en svo að kasta af mér öllum klæðum nema nærfötum og fara í hvítan kyrtil sem þarna hékk á herðatré. Næst þegar hann kom tók hann punktana og sagði að það væri að styttast í að hann myndi sækja mig.
Er ekki viss hvað tímanum leið en þegar hann sótti mig stillti hann mér upp fyrir framan dyr og sagðist þurfa að setja reipi um hálsinn á mér og bindi fyrir augun. Ég samþykkti og ákvað að hafa augun lokuð, reyna ekki að kíkja bara treysta. Hafði í og með áhyggjur af því að mig myndi svima en þagði um það. Boðberi sagðist myndu leiða mig allan tímann og ég ákvað bara að treysta, upplifa og njóta. Hann bankaði eitt högg á dyrnar og gaf upp ákveðið svar við spurningu sem borin var upp. Okkur var hleypt inn og hann leiddi mig og stillti mér svo upp. Ég þurfti að svara spurningum, þeim sem kröfðust já eða nei svars svaraði ég alltaf með jái. Öðrum spurningum átti ég mis erfitt með að svara en fékk samt þau viðbrögð frá spyrjanda að sá eða sú væri ánægður með svarið. Þrisvar sinnum var ég leidd inn og út í gegnum upphafsdyrnar, allan tímann með bundið fyrir augum. Þrisvar sinnum var ég leidd eða mér stýrt í gegnum mismunandi "manndómsvíxlur". Stóðst öll próf og loksins var bindið tekið frá augunum. Það var mjög yfirþyrmandi og ég hálf klökknaði en var ákveðin í að standa bein í baki, bera höfuðið hátt en þó vera auðmjúk. Tvisvar eða þrisvar í gegnum ferlið þurfti ég að krjúpa á kné og það var einna erfiðast því ég er mjög léleg og veik fyrir í hægra hnénu en ég fékk ágætis stuðning og þetta gekk vonum framar, þó ekki alveg áfallalaust. Var einu sinni næstum dottin. Á næsta fundi sem verður n.k. fimmtudag á ég að segja stuttlega frá upplifun minni af víxlunni. Má ekki vera margorð og ég verð að hugsa mig vel um og æfa mig í huganum hvað af því sem ég upplifði ég skuli tjá mig um og hvernig.