Mér finnst allt í lagi að árið sem ég kemst á fimmtugsaldurinn sé runnið upp, það er ekkert erfitt við það. Mér finnst í góðu lagi þótt það sé mikið að gera á öllum "vígstöðvum" í kringum mig. Það er eitthvað sem er bara tímabundið og mun ganga yfir. En mér finnst það ferlegt að reyna að tjónka við skapsveiflurnar sem oftast eru bundnar við nokkra daga í mánuði en ekki þó endilega. Ég er farin að velta því alvarlega fyrir mér hvort þetta sé eitthvað sem bara er ekkert að gera við?