Ég veit ekkert í minn haus núna. Held helst að ég hafi upplifað martröð lífs míns í gærkvöldi af hálfu manns sem ég hef þekkt í amk tuttugu ár og hefði fyrirfram aldrei trúað því að hann gæti komið svona fram gangvart mér. Atvikið hefur vakið upp sárar minningar um nokkuð sem henti mig þegar ég var tólf ára gömul. Get varla skrifað um þetta. Veit að þetta hefði geta verið mun verra en þetta var klárlega misnotkun á trausti, kynferðisleg áreitni. Oj, oj, og aftur oj. Ætti helst að skrifa niður nákvæmlega hvað gerðist en ég vil helst gleyma þessu sem allra fyrst og reyna að líta á þetta sem vondan draum. Verð samt einhvernveginn að gera manninum skiljanlegt að ef hann hagi sér svona aftur muni ég fara með málið lengra. Vonandi skammast hann sín og þetta kemur ekki aftur upp en það er hætt við að ég verði stífari og fálátari, forðist hann hreinlega.