Það gengur hægt þetta skilnaðarmál. Óratíma tók að fá fyrirtækið metið og þegar niðurstaðan kom loksins var hún eiginlega bara brandari. Fyrirtækið KU vera metið á innan við sex millijónir sem skiptist svo í fjóra hluta og helmingurinn af hans hlut er um sjöhundruðþúsun. Lögfræðinguinn minn er í sumarfríi og sú sem hún setti inn í málið gat ekki mætt mér í þann tíma sem ég var búin að fá hjá sýslumanni. Tímanum var breytt fyrir mig og færður aftur um mánuð.