Thursday, October 30, 2003

Tók inn síðustu töfluna af primolut í morgun og sá þá að ég hafði gleymt progynon-töflunni í gærkvöldi. Bætti úr því snarlega. Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist næstu 10 daga eða svo...

Tuesday, October 28, 2003

Áttundi (af tíu) dagur í dag. Hef aðeins fundið fyrir kviðarholsstingjum. Hvort þetta eru bara vindverkir eða túrverkir er ég ekki alveg viss um. Vigtaði mig sl. sunnudag og er um 84 kg. Takmarkið er a.m.k. 6-8 kg í viðbót...

Wednesday, October 22, 2003

Borðaði í gær: síðdegi, vatn og risahrísköku með kæfu. Kvöldmatur hjá Helgu og Ingva, hakkpottréttur með lauk, papriku, sveppum og tómat. Um kvöldið stalst ég aðeins í ostana hans Davíðs. Háttaði fyrir tíu og náði rétt að lesa tvær smásögur. Ætlaði varla að nenna á fætur í morgun en var komin inn á bað tuttugu mínútum fyrir sjö og fór beint í sturtu. Morgunmatur, speltrúsínubrauð og hrískaka með sardínum, smá kaffi og vatn. (Fékk svimakast á leiðinni í vinnuna). Í tíukaffinu fékk ég mér te og hrísbrauðssamloku með sardínum. Í hádeginu var hrein hrært skyr með fræjum og ósykruðu musli á matseðlinum mínum. Mun fá mér rúsínubrauð með kæfu í þrjúkaffinu, elda svínagúllaspottrétt í kvöldmatinn og svo veit ég ekki hvað ég fæ mér í saumakortaklúbbnum hjá Sonju í kvöld.

Tuesday, October 21, 2003

Í morgun byrjaði ég á Primolut-töflunum og mun ég taka eina á dag í tíu daga. Ég er svolítið stressuð yfir þessu en veit þó af því að ég þarf að vera vakandi gagnvart lystinni og í hvað ég sæki! Fékk mér litla jógúrt og te í morgun, risahrísköku með sardínum í tíu kaffinu og afgang af kjötbollum og sallati frá því í gærkvöldið í hádeginu.

Saturday, October 18, 2003

Ég ætti eiginlega að vera dugleg að skrá niður hvað ég læt ofan í mig dags daglega. Það er nokkuð ljóst að þarmarnir eru ekki alveg í jafnvægi svo það er eins gott að passa sig á sykrinum. Nú er ég búin að taka inn 12 töflur, þá þrettándu tek ég inn í kvöld. Útferðin er nokkur en ég er samt að þrjóskast við og nota ekki enn svona nærju-hlífar. Andlega jafnvægið er meira en samt ekki alltof gott á köflum. Þolinmæðis-þröskuldurinn virðist þó hafa hækkað eitthvað.

Thursday, October 09, 2003

Smá forsaga

Ég geng fyrir hormónum og hef gert það sl. 17 ár eða svo. Fyrst var það pillan; eugynon og triquilar, en fljótlega upp úr tvítugu annars konar hormónar;
primolut, trisekvens forte og nuelle.

hætti 22. sept og byrjaði jafnframt á síðustu blæðingum þeirra hormóna (nuelle). Þetta var á mánudegi og ég var ánægð með að byrja svona "seint", það var oftar sem ég var byrjuð um helgina og jafnvel á föstudeginum. (Gæti náttúrulega tengst mataræðinu). Hreinsun tók engu að síður 9-10 daga og það er það sem mér finnst of mikið og langur tími.

Byrjaði á nýrri tegund 6. okt. Progynon. Tek inn "lyfið" á kvöldin og núna átta dögum seinna finn ég aðeins fyrir aukinni útferð... Mér finnst samt erfitt að gera mér grein fyrir ástandi líkamans og líklega kemur margt þar inn í.....