Sunday, January 25, 2004

Mikið rennsli en ekki alveg eins þreytt og sl. tvo daga!

Saturday, January 24, 2004

Blæðingar byrjuðu í morgun með þykku "drasli". Er að velta því fyrir mér hvort það sé vegna þess að ég byrjaði degi of snemma á primolut og tók svo eins dags hlé til að hætta inntöku á "réttum degi. Sennilega hefði ég bara átt að halda áfram og klára inntöku degi fyrr.

Thursday, January 22, 2004

Sú tíunda af tíu tekin inn í morgun.

Thursday, January 15, 2004

Útferð og kláði. Líklega verð ég að fá mér Acidophilus mjög fljótlega og vera dugleg í lífrænu AB-mjólkinni.

Monday, January 12, 2004

Byrjaði degi of snemma á Primolut. En hvað ég er utan við mig. Skyldi ég komast upp með það að taka enga á morgun og svo hinar níu, næstu níu daga þar á eftir?

Saturday, January 10, 2004

Nú styttist í Primolut-inntöku aftur. Hef verið að taka eplaedik og drekka mikið vatn til að reyna að losna við bjúginn. Er bara farin að klæja í leggöngin, sveppur???

Friday, January 02, 2004

Blæðingum var lokið alveg í gær og stóðu aðeins yfir í svona 4-5 daga. Svona á þetta að vera!

Sunday, December 28, 2003

Virðist vera orðin eins og klukka. Blæðingar byrja alltaf á sama tíma. Byrjuðu í smáum stíl seinni partinn í gær. Og nú er bara að vona að þær verði búnar fyrir næstu helgi.

Tuesday, December 23, 2003

Áttundi dagur af tíu á Primolut. Rennur á mig bjúgur en festi samt hringinn orðið sjaldan á fingrinum.

Wednesday, December 17, 2003

Jæja, dagur tvö af tíu. Hafði ekki tíma til að fá mér morgunmat í morgun, óskiljanlegt alveg því ég fór á fætur fyrir sjö. En nú er maginn að kalla á eitthvað. Fæ mér bara vatn þar til ég kemst í kaffi.....

Monday, December 15, 2003

Á morgun tek ég inn fyrstu töfluna af Primolut í þessum mánuði. Ég hlakka ekki til næstu tíu daga.....

Friday, December 12, 2003

Nú styttist í inntöku primolut aftur. Ég hlakka ekki til. Bjúgurinn verður meiri og erfiðara að eiga við þessa sterku löngun í eitthvað sætt sem heltekur mann stundum....

Friday, December 05, 2003

Hvað er að gerast núna, líklega á ég ekki að skrifa um knúsið....???

Thursday, December 04, 2003

Blæðingar í rénun, hélt jafnvel að þær væru alveg búnar en svo var ekki. Klárast vonandi á morgun.

Wednesday, December 03, 2003

Streymið virðist heldur meira en síðast, ég bíð bara og vona að allt verði búið fyrir helgina!

Sunday, November 30, 2003

Byrjaði á túr seinni partinn í gær og voru liðnar akkúrat fjórar vikur frá því ég byrjaði síðast. Rennslið var fremur lítið (eins og síðast) en í morgun fór allt á fullt með tilheyrandi verkjum og látum...

Thursday, November 27, 2003

Síðasta primolut-taflan í þessum mánuði tekin inn. MIKIÐ ER ÉG FEGIN!

Wednesday, November 26, 2003

Enn með smá bjúg en samt næ ég hringnum af mér. Þarf helst að hvíla mig á kvöldin, en hver má vera að því?

Tuesday, November 25, 2003

Ég þarf svo að passa mig þessa dagana, bæði á kaffinu og stjórnleysinu gagnvart "átfíkninni" (og það er helst á kvöldin)! Tók inn áttundu töfluna af tíu í morgun og ég verð víst að sætta mig við að ég er með meiri bjúg og viðkvæmari á meðan á inntöku-dögunum stendur. Samt næ ég orðið að taka giftingahringinn af fingrinum núna það hef ég ekki getað í nokkra mánuði!!!

Saturday, November 22, 2003

Alltof mikið kaffiþamb í dag. Fékk svimakast í hádeginu akkúrat þegar ég sat og var að borða kjötsúpuna...