- Skilnaður á döfinni -
Viku fyrir síðustu jól ákvað Davíð að nú væri hann búinn að fá alveg nóg af mér og okkar hjónabandi, kom til mín, sagðist líða illa og væri búinn að ákveða að fara. ÉG hafði ekkert um þetta að segja en eftir á að hyggja fannst mér maðurinn nokkuð lúmskur. Hann vissi upp á hár hvernig hann gæti hagað því til að ég missti þolinmæðina og missti mig svo hann væri stikkfrír og gæti látið sem þetta væri algerlega mér að kenna. Þegar frá líður og þegar vikurnar og mánuðurnir fyrir þennan punkt líða um hugann sé ég að hann var farinn að haga sér mjög undarlega og mér fannst ég, undir það síðasta, ekki komast einu sinni inn á topp tíu listann hjá honum. Enda var maðurinn undarlega fljótur í nýtt samband með 17 ára yngri erlendri stelpu sem hann kynntist í gegnum nýliðastarfið í HSSR. :-( Ekkert gengur í skilnaðarmálinu sjálfu því það vantar að fá matið á fyrirtækinu og hans hluta til að gera sanngjarna eignaskiptingu.

