Friday, July 19, 2013

Misskilin

Það gengur hægt þetta skilnaðarmál.  Óratíma tók að fá fyrirtækið metið og þegar niðurstaðan kom loksins var hún eiginlega bara brandari.  Fyrirtækið KU vera metið á innan við sex millijónir sem skiptist svo í fjóra hluta og helmingurinn af hans hlut er um sjöhundruðþúsun.  Lögfræðinguinn minn er í sumarfríi og sú sem hún setti inn í málið gat ekki mætt mér í þann tíma sem ég var búin að fá hjá sýslumanni.  Tímanum var breytt fyrir mig og færður aftur um mánuð.

Wednesday, May 22, 2013

- Skilnaður á döfinni -

Viku fyrir síðustu jól ákvað Davíð að nú væri hann búinn að fá alveg nóg af mér og okkar hjónabandi, kom til mín, sagðist líða illa og væri búinn að ákveða að fara.  ÉG hafði ekkert um þetta að segja en eftir á að hyggja fannst mér maðurinn nokkuð lúmskur.  Hann vissi upp á hár hvernig hann gæti hagað því til að ég missti þolinmæðina og missti mig svo hann væri stikkfrír og gæti látið sem þetta væri algerlega mér að kenna.  Þegar frá líður og þegar vikurnar og mánuðurnir fyrir þennan punkt líða um hugann sé ég að hann var farinn að haga sér mjög undarlega og mér fannst ég, undir það síðasta, ekki komast einu sinni inn á topp tíu listann hjá honum.  Enda var maðurinn undarlega fljótur í nýtt samband með 17 ára yngri erlendri stelpu sem hann kynntist í gegnum nýliðastarfið í HSSR.   :-(   Ekkert gengur í skilnaðarmálinu sjálfu því það vantar að fá matið á fyrirtækinu og hans hluta til að gera sanngjarna eignaskiptingu.

Wednesday, February 02, 2011

Fór í gær og leysti út einn brúsa af hormónageli til að smyrja á mig. Blæðingarnar kláruðust alveg í gær. Stóðu líklega yfir í viku eða svo og þvílíkt streymi á degi 2-4, vó. Ætla ekki að láta líða alveg svona langan tíma þar til næst. Miða líklega við tvo mánuði. tek þá primolut aftur í endaðan mars eða byrjun apríl.

Thursday, January 27, 2011

Bara örstutt.... - blæðingar hófust í gærkvöldi tveimur og hálfum degi eftir 10. Primolut töfluna.
Ætli það sé ekki best að fara að smyrja sig aftur??? Hugsanlega verð ég líka að senda Jens línu.

Wednesday, November 03, 2010

Nokkrir puntar til að muna

Enn er ég komin á handstýrt breytingaskeið í kjölfar grátkasta, svita og skapsveifla. Það tók nokkurn tíma að ná sambandi við kvensann minn en ég var í viðtali við hann 25. okt. sl. Ákváðum í sameiningu að ég breytti um hormóna. Færi frekar að nota hormónagel og taka svo primolut á ca 2-3 mánaða fresti til að hafa blæðingar. Daginn eftir fór ég í blóðrannskókn og í næstu viku fer ég í beinþéttnimælingu. Hitti svo kvensann aftur í byrjun desember.

Mamma var greind með illkynja frumubreytingar í brjósti um daginn og fer í aðgerð í næstu viku. Tengdamamma var greind með tvenns konar eitla-krabbamein. Ekkert fannst þó í brjóstum sem læknum fannst furðulegt og tóku annað sýni og sendu í flýtigreiningu til að vera alveg vissir um þá niðurstöðu. Hvað sem því líður er sennilega erfiður tími framundan.

Wednesday, January 09, 2008

Mér finnst allt í lagi að árið sem ég kemst á fimmtugsaldurinn sé runnið upp, það er ekkert erfitt við það. Mér finnst í góðu lagi þótt það sé mikið að gera á öllum "vígstöðvum" í kringum mig. Það er eitthvað sem er bara tímabundið og mun ganga yfir. En mér finnst það ferlegt að reyna að tjónka við skapsveiflurnar sem oftast eru bundnar við nokkra daga í mánuði en ekki þó endilega. Ég er farin að velta því alvarlega fyrir mér hvort þetta sé eitthvað sem bara er ekkert að gera við?

Tuesday, May 16, 2006

Your Lucky Underwear is Purple
Dreamy and idealistic, you envision great things for your life. Your lucky purple underwear can make those dreams come true!
You're a busy little butterfly. You have the most projects, interests, and friends of anyone you know.

You also have a flair for the dramatic. Sometimes too much drama comes in to your life and brings things to a stop.
If you want to focus more, and flutter less, put on your purple underpants. They'll help you get the important things done.

Sunday, May 14, 2006


- Athyglisvert -

Fann þetta próf á síðunni hennar Hrundar og stóðst ekki mátið. Hugsanlega er útkoman nú ekki 100% rétt í öllum tilvikum.

You scored as Journalism. You are an aspiring journalist, and you should major in journalism! Like me, you are passionate about writing and expressing yourself, and you want the world to understand your beliefs through writing.

Journalism

100%

English

75%

Linguistics

67%

Philosophy

67%

Engineering

67%

Theater

67%

Psychology

67%

Sociology

58%

Anthropology

50%

Mathematics

50%

Biology

50%

Dance

42%

Chemistry

33%

Art

33%

Saturday, December 10, 2005

Afmælisdagurinn 17. mars

You tend to find yourself lucky - both in business and in life.
And while being wealthy is nice, you enjoy sharing your abundance with others.
You put your luck to good use: you are very ambitious and goal oriented.
Often times, you get over excited and take on more than you can manage.

Your strength: Your ability to make your own luck

Your weakness: Thinking you can do it all

Your power color: Bronze

Your power symbol: Half Moon

Your power month: August

Sunday, November 13, 2005

Your Brain is 73.33% Female, 26.67% Male
Your brain leans femaleYou think with your heart, not your headSweet and considerate, you are a giverBut you're tough enough not to let anyone take advantage of you!
What Gender Is Your Brain?

Tuesday, June 28, 2005

Ég er nýbúin að leysa út hormónalyfseðil en hef ákveðið að taka mér smá frí frá hormónunum. Tók síðustu pilluna í bili á sunnudagsmorguninn. Er á blæðingum sem stendur. Veit ekki hversu langt fríið verður en ég er að spá í að fara í höfuð-beina- og skjaldhryggs- meðferð áður en ég byrja aftur...

Tuesday, February 22, 2005

- Langt síðan síðast -

Í gær komu vítamínin og snyrtivörurunar frá New Skin til mín í tveimur kössum. Byrjaði að taka hálfan skammt í morgun en er að íhuga að fara fljótlega á fullan skammt í 2-4 vikur og sjá svo til.

Í kvöld er ég svo að byrja á 1. töflunni að 10 daga primolut skammti mánaðarins. Það er svo sem ekkert spennandi....

Thursday, October 14, 2004

Rósa frænka fór heim á sjötta degi!

Saturday, October 09, 2004

Rósa frænka kom í heimsókn og nú byrja ég að telja dagana.

Thursday, October 07, 2004

Kláraði primolut-skammtinn þennan mánuðinn í morgun. Tíunda og síðasta taflan. Svo er bara spurning hvenær Rósa frænka kemur í heimsókn og í hversu marga daga hún verður...

Tuesday, September 28, 2004

Byrjaði á hinum hormónunum í morgun. Hvernig ætli næstu tíu dagar verði?

Friday, September 24, 2004

Það eru tólf dagar síðan ég byrjaði aftur að taka hormónana. Jafnvægið er gott en eftir fjóra daga byrja ég á inntöku tíu daga skammts af aukahormónum og ég hlakka ekki til.

Wednesday, September 15, 2004

Byrjuð aftur eftir hlé

Já, ég tók mér langt hormónahlé í sumar. Var meira að segja mikið að spá í að hætta þessu alveg. En ég byrjaði aftur sl. mánudag, þann 13. sept. og ætla að fylgjast vel með framvindunni!

Thursday, April 22, 2004

Virðist búin og því smá fargi af mér létt. En hvers vegna skyldi þetta hafa færst svona til?