Ég er búin að sækja um inngöngu í alþjóðlega, blandaða frímúrara reglu og mun eiga von á því að verða boðin og vígð inn einhvern tímann fljótlega á nýja árinu. Á fundum eru allir í svörtum (einlita) sígíldum jakkafötum eða drögtum og hvítum skirtum og blússum. Fann buxnadragt og blússu í Black Pepper í gær og fjárfesti í fyrir tæpar 35 þúsund krónur. Á svarta skó og svarta sokka.
Tuesday, November 11, 2025
Wednesday, September 17, 2025
Eitthvað sem ég vil muna en ekki opinbera, amk ekki strax
Fyrir tæpri viku, í kringum 12.-14. september kom blóð í pappírinn þegar ég þurrkaði mér eftir að hafa pissað. Hef ekki fundið fyrir neinu sleni eða slappleika. Blóðið var ekki mikið en kom í pappírinn oftar en einu sinni. Ég setti dömubindi í brækurnar og amk í einu tilviki kom dökkur smá blettur þar. Hef ekki orðið vör við þetta í fjóra daga en ég ákvað í framhaldinu að panta mér tíma í leghálsskoðun á heilsugæslunni. Fékk ekki tíma fyrr en 2. okt. n.k. en í millitíðinni neita ég því að hafa of miklar áhyggjur þótt það slæðist að mér sú hugsun að í versta falli muni ég ekki geta gefið blóð aftur. Og mig sem vantar aðeins 6 heimsóknir upp í 75.
Saturday, September 28, 2019
Reið og sár
Sunday, December 17, 2017
Jóladagur 25. Desember 2017 í óháða söfnuðinum.
Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu. Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín. Helluvaði er aðeins nokkra mínútna gönguferð frá húsinu sem foreldrar mínir byggðu á Hellu og búa enn í.
Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina, þessa með Grýlu utan á, undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið var hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja textamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í textamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.
Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba sem voru átta og tíu árum eldri en ég, boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.
Á Þorláksmessukvöld var gervitréð sett saman og pabbi athugaði hvort seríurnar væru í lagi áður en þær voru settar á og tréð skreytt. Mér fannst mest spennandi að sjá hversu mikið tréð hafði "minnkað" frá því árinu áður. Það var alltaf einhver munur en ég óx frekar hægt, 1-2 cm ár ári og eitt ári, tók systir mín mikinn vaxtakipp lengdist um heila tíu sentimetra og óx mér vel yfir höfuð. Ég, sem hafði alltaf verið aðeins stærri, var alveg nokkur ár að ná henni aftur.
Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.
Mig langar til að enda þetta á því að fara með smá bæn í ferskeytluformi sem ég samdi í endaðan mars fyrir bráðum þremur árum:
leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
Takk fyrir mig!
Tuesday, December 12, 2017
Unnið að jólahugvekju
Thursday, November 27, 2014
Hjá spákonu
Saturday, November 22, 2014
Afhverju í ósköpunum?
Friday, July 19, 2013
Misskilin
Wednesday, May 22, 2013
Wednesday, February 02, 2011
Thursday, January 27, 2011
Wednesday, November 03, 2010
Enn er ég komin á handstýrt breytingaskeið í kjölfar grátkasta, svita og skapsveifla. Það tók nokkurn tíma að ná sambandi við kvensann minn en ég var í viðtali við hann 25. okt. sl. Ákváðum í sameiningu að ég breytti um hormóna. Færi frekar að nota hormónagel og taka svo primolut á ca 2-3 mánaða fresti til að hafa blæðingar. Daginn eftir fór ég í blóðrannskókn og í næstu viku fer ég í beinþéttnimælingu. Hitti svo kvensann aftur í byrjun desember.
Mamma var greind með illkynja frumubreytingar í brjósti um daginn og fer í aðgerð í næstu viku. Tengdamamma var greind með tvenns konar eitla-krabbamein. Ekkert fannst þó í brjóstum sem læknum fannst furðulegt og tóku annað sýni og sendu í flýtigreiningu til að vera alveg vissir um þá niðurstöðu. Hvað sem því líður er sennilega erfiður tími framundan.
Wednesday, January 09, 2008
Tuesday, May 16, 2006
| Your Lucky Underwear is Purple |
![]() You're a busy little butterfly. You have the most projects, interests, and friends of anyone you know. You also have a flair for the dramatic. Sometimes too much drama comes in to your life and brings things to a stop. If you want to focus more, and flutter less, put on your purple underpants. They'll help you get the important things done. |
Sunday, May 14, 2006
- Athyglisvert - Fann þetta próf á síðunni hennar Hrundar og stóðst ekki mátið. Hugsanlega er útkoman nú ekki 100% rétt í öllum tilvikum. You scored as Journalism. You are an aspiring journalist, and you should major in journalism! Like me, you are passionate about writing and expressing yourself, and you want the world to understand your beliefs through writing.
|
Saturday, December 10, 2005
Afmælisdagurinn 17. mars
|
![]() And while being wealthy is nice, you enjoy sharing your abundance with others. You put your luck to good use: you are very ambitious and goal oriented. Often times, you get over excited and take on more than you can manage. Your strength: Your ability to make your own luck Your weakness: Thinking you can do it all Your power color: Bronze Your power symbol: Half Moon Your power month: August |
Sunday, November 13, 2005
Tuesday, June 28, 2005
Tuesday, February 22, 2005
Í gær komu vítamínin og snyrtivörurunar frá New Skin til mín í tveimur kössum. Byrjaði að taka hálfan skammt í morgun en er að íhuga að fara fljótlega á fullan skammt í 2-4 vikur og sjá svo til.
Í kvöld er ég svo að byrja á 1. töflunni að 10 daga primolut skammti mánaðarins. Það er svo sem ekkert spennandi....

